08febrúar
Það er ekki annað hægt en að byrja þessa færslu á þessari setningu:)
01júlí
Langþráða sumarfríið mitt fer að byrja eftir aðeins nokkra daga:)
Ég vildi bara deila því með ykkur að ég er að fara til PORTÚGAL eftir 9 daga:) hehehe hlakka bara til!!! Liggja í sólbaði og hafa það gott:)
Bara 5 dagar eftir í vinnu og svo 5 vikna sumarfrí...bara NÆS:) Við ætlum að reyna að njóta sumarsins sem mest og það er bara vonandi að veðrið leiki við okkur:)
Ég komst inn í kennó og háskólann á Ak og hef ákveðið að fara bara á Ak miklu styttra að fara og svona:) er bara orðin voðalega spennt yfir þessu öllu saman:) Bara spennandi tímar framundan!!
Verð 22 ára eftir 6 daga..omægod..þetta fer að nálgast í 25 og svo í ...30 ára!!! Allt of fljótt að líða þetta líf!!! Enda verður maður að njóta þess á meðan maður lifir:)
Jæja ég vildi bara kasta á ykkur kveðju..
og skila til allra vina minna að ég elska ykkur ofboðslega mikið og sakna ykkar svo mikið
-heyri svo sjaldan í ykkur-
Bara að skila þessu til ykkar elskurnar mínar:)
sumarkveðja Katie
21mars
Það er ekki öllum treystandi...það er nokkuð ljóst!!!!!!!!!!!
Hvað segjið þið er ekki komin tími á færslu:)
Páskafríið er í nánd og bíð ég spennt eftir að páskaegg, frá Nóa siríus...það er lang besta súkkulaðið:)
Skólinn gengur eins og í sögu, hef ekki fengið svona góðar einkunnir síðan ég veit ekki hvenær!!!!! Svo er það bara útskrift 26 maí og er öllum mínum vinum boðið og vona ég svo sannarlega að sjá sem flesta..við slettum svo ærlega úr klaufunum og skellum okkur á barinn:) Látið mig bara vita af komu ykkar svo að hægt sé að redda gistingu og svona:) Ég veit að Eydís ætlar að láta sjá sig í skagafirðinum!!!! Hlakka bara til:)
Ég hef komist að því að ekki er hægt að treysta öllum í kringum mann þó svo að þú teljir viðkomandi vera vin manns, en svona er lífið!!! Þannig að ég er farin að passa mig hverjum ég treysti og hverjum ekki!!!!!
Jæja nóg um það, ég bíð eftir að Páll 'Oskar komi á krókinn, en hann er vætanlegur um páskana og þá verður sko skellt sér í dansskóna og tekin nokkur spor!!! Davíð finnst ég samt ekkert voðalega góður dansari sérstaklega ekki þegar maður tekur gömlu sporin sem við vorum að taka hér í denn:) En mér finnst ég geggjað töff:) hehehe
En jæja ég verð að fara taka til í kotinu mínu...
later kata
16febrúar
Get ekki beðið!!!! sól og sumar
Jæja þá erum við búin að borga staðfestingargjaldið til Portúgals, við ákváðum að fara þanngað...mig langar svo að prófa að fara eitthvað annað...fer nefnilega alltaf til costa:) mig hlakkar svo til að ég er að deyja...fer 10 júlí í tvær vikur:)Anna ég kemst ekki á víkinna þessa helgina þarf að vinna á morgun, en ég kem næstu helgi, verð bara að vona að það verði ekki vinna á laugardeginm...ég er farin að sakna ykkar, þá sérstaklega hótel mömmu:) Það er ekki hægt að finna betra hótel..hehehe:)
Nú þarf maður bara vera duglegur að fara í ljós og hreyfa sig svo maður verði nú svona þokkalegur á ströndinni...hehehe:) ég held að ég geti ekki beðið í 5 mánuði..!!!!
Annars er eiginlega ekkert að frétta af okkur fjölskyldunni:) Þannig að ég ætla að segja þetta gott í dag...
kveðja Katie
11febrúar
Ég er ekki hætt
Ég get nú ekki sagt að ég sé eitthvað að standa mig í þessu blessaða bloggi en ég ætla að bæta ykkur það upp og skrifa eina færslu í dag:)Það er svosem voðalítið að frétta!!! Nema það að ég á svo yndislegan nágranna hérna í blogginni, hann ákvað á mánudagsmorgni klukkan 6:30 að botna græjurnar sínar þá er ég að tala um BOTNA græjurnar...ég hélt að ég myndi ekki vera eldri...jesús minn, það er náttúrulega ekki allt í lagi með sumt fólk!!! Annars er ég bara í skólanum og vinna...svo er það bara útskrift 26 maí..það verður sko geggjað:) Svo erum við að fara panta ferð til costa del sol og er að fara staðfesta ferðina á mánudaginn...hlakka svo til að ég er að deyja:) Fara liggja í sólbaði og bara hafa það ótrúlega næs:)
Svo er fyrirhuguð ferð suður 9-11 mars held ég ...eða allavega þegar Incubus eru að spila:) Þannig Fríða mín ég kem þá og kíkji á ykkur hjúin og kanski að við kæijum eitthvað á skrallið:) hehehe sakna þín líka ekkert smá mikið dúllan mín:) Bíð spennt að fara suður og hitta alla:)
Segjum þetta gott í bili
Kata kveður
15janúar
Gleðilegt nýtt ár
Gleðilegt nýtt ár kæru vinir:)
Ég hef ákveðið að taka mig á blogginu á þessu nýja ári..enda ekkert smá flott ár 2007:) Jólin voru alveg frábær í alla staði. Við borðum heima hjá tengdó og guð hvað rjúpan var góð, þetta er án efa besta máltíð sem til er:) Það var svo ráðist á pakkana sem voru ekkert smá margir og hafði Rakel ekki undan að opna alla pakkana. Við fengum meiri segja gasgrill og allan pakkan sem því fylgir..ekkert smá ánægð með það:) svo var það eldhúsborð, hillur og rimlagardínur...lengi mætti telja þannig að við vorum bara mjög sátt:)
Rakel fór svo í rör 28 des og gekk það bara mjög vel nema þegar við vorum á heimleið þá ældi hún í fyrsta skiptið í bílinn. þannig að við önguðum öll á heimleið en það var ekkert slæmt:)
Mamma og pabbi komu svo til okkar 29 des og gistu eina nótt og við fórum svo öll í sveitina mína í Vatnsdalnum til að fara í skírn hjá litlu frænku okkkar, svo var bara brunað heim eftir veisluna.
Áramótin voru einnig heima hjá tengdó og voru þau alveg frábær það var sko mikið skotið upp og var Rakel þvílík hetja, hún ætlaði nú bara að hlaupa í áramótabrennuna alveg svell köld...ég náði nú að stoppa hana.hehehe:) Svo skellti maður sér aðeins út og skemmti sér aðeins:) Svo tók bara vinnan við og jólafríðið búið og skólinn byrjaður og svo er það bara útskrift í maí:) Ég er svo lítið í skólnum og það er mjög fínt, við mæðgur erum bara heima saman:)
Við erum mjög mikið að pæla að fara út í sólna í sumar ég bara verð að fara, ég er meiri segja byrjuð að skoða ferðir ég er svo spennt að ég er að deyja..!!!
ég ætla að segja þetta gott í dag
kveðja Kata
10desember
Próf próf próf
Ég er búin að vera óhemju löt þessa dagana að blogga, hef valla kíkt á aðrar bloggsíður, sem er náttúrulega ekki gott:( En ég er bara á fullu í próflestri og prófum þannig að ég hef bara ekki verið að gefa mér tíma í þann pakka.Rakel er á Húsavík hjá ma og pa í pössun á meðan ég er í prófunum, og það er geggjað skrýtið að hafa hana ekki hjá mér, ég er farin að sakna hennar ekkert smá mikið:( En ég kem á Húsavík á föstudaginn að sækja skvís og svo förum við á Ak á laugardeginum í myndatöku fyir jólin og brunum svo bara heim á krókinn, þannig að þetta verður bara stutt stopp. Vona að ég fái nú að hitta þig Anna mín á föstudaginn:) Svo verður bara tekið því rólega þangað til að Rakel fer í aðgerð annað hvort 21 des eða 28 des, hún er nefnilega að fá rör í eyrun. Mér kvíður ekkert smá fyrir...ég er með svo lítið hjarta þegar það kemur að einhverju svona, svæfingum og svoleiðis:) En það er vonandi að henni líði nú betur eftir aðgerðina, hún er nefnilega búin að vera svo lasin og á endalausum pensilín skömmtum þannig að ég bara krossa fingur:)
Mér er búið að ganga bara nokkuð vel í þeim prófum sem ég er búin að fara í enda verð ég að ná öllu, ég hef líka aldrei lært svona mikið fyrir próf, ég verð heilaþveginn eftir prófin, mjög líklega:) Annars er ekkert að frétta af mér, nema það að ég er að deyja úr jólaspenningi, og ég get eki beðið eftir því að fá rjúpuna um jólin...ummmm hlakka svo til:)
En já ég lofa myndum af Rakel á síðuna hennar um næstu helgi þegar ég er búin í prófunum´og komin í jólafrí frá skólanum:)
Ég ætla að fara kasta mér útaf eða reyna það...félagi minn á neðri hæðinni er nefnilega með partý og það heyrist gjörsamlega allt, en ég vona að þeir fari nú að skella sér á barinn:)
p.s Ég vill óska Guddu minni og Inga til hamingju með´litla bumbukrílið þeirra:)
Góða nótt elskurnar mínar:)
16nóvember
Stal þessu...hehehe
1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifin af mér?
5. Langar þer að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tíman langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?
09nóvember
Home sweet home
Omægod það eru alveg að koma jól...!!!! Ég er komin í jólaskapiðÉg er alveg að deyja mig langar svo að fara á Hú að djamma með skvísunum mínum um jólin að ég er alveg að deyja!!! Og er mikið að velta þessu fyrir mér:) Ég er eiginlega farin að sakna Húsavíkur...var að hugsa um það í dag!!! Mig langar að fara koma..og sérstaklega til að hitta skvísurnar og familíuna:) ohhh er að deyja bara akkúrat NÚNA!!! Langar helst að koma bara í kvöld!!!!
En ég kem 1 des, hlakka til að koma þá og vona að ég geri eitthvað skemmtilegt, og ég vænti þess að koma m jólin og hitta ykkur allar..orðið svo langt síðan;(
Jæja ég nenni ekki að pirra mig lengur á þessu
síjú:)
Katie
02nóvember
Með hor í nös
Ég er að kafna úr kvefi síðan á mánudaginn og dóttir mín líka. Við erum búnar að vera heima síðan á mánudaginn og erum enn heima...þetta er ekkert voðalega skemmtilegt skal ég segja ykkur:( En við hljótum að koma til um helgina:)Ég farin að halda að það sé einstaklings bloggvírus að ganga, ég er búin að vera skoða bloggsíður og það nennir enginn að blogga hvað þá ég...hehehe þetta er einhver vírus sem er að lagstur á liðið í bloggheiminum:)
Anna Heba við mæðgur komum helgina fyrir 1 des, daman er nefnilega að fara í pössun til ömmu sinnar og afa í eina og hálfa viku á meðan ég er í prófunum:) Þannig að við getum hisst þá helgi áður en ég skil barnið mitt eftir:)
Ég náði öllum prófunum mínum og er nokkuð sátt með það, nema ég náði ekki þessari djö.... stæ sem ég gat bara eitt dæmi af þrem í...sem er reyndar ekkert skrýtið!!!!! Ég hata stærðfræði mera en allt!!!!!! En ég segji samt að ég hafi náð öllu því að stæ er bara stæ og er það ekkert nýtt fyrir mér að ná ekki stæ!!!!
Það eru alveg að fara koma jól...!!! Ég er orðin svo spennt að ég er að deyja mig hlakkar samt mest til að fá rjúpuna og sósuna ummmmm get ekki beðið:)
Ég fót nefnilega í óvissuferð með Auði og vinkonum hennar og fórum við inn á Akureyri og fórum í jólalandið og ómægod ég fékk alveg þvílíkan fiðring um allan líkamann!!! Svo þegar ég kom heim þá langaði mig helst að fara skreyta allt heima og kaupa jólatré...hehehe illa klikkuð:)
Mig langar svo að fara til London eða bara eitthvert í helgarferð til að versla jólgjafir og hafa það kósí að ég er að deyja...bara ef ég myndi nú vinna í lottó þá myndi ég bjóða öllum vinkonum mínum með mér í verslunarleiðangur í London!!! Ekki amalegt það!!!!!
Mig dreymdi um vöfflur með rjóma og súkkulaði í alla nótt og mig langar svo í að ég er hreinlega að deyja...þannig að ég er að pæla að skella í eitt vöfflu deig og bjóða Rakel að njóta með mér!!
ég er farin að baka
Katie